Njóttu lífsins á meðan þú getur!
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
08.03.2010 17:25:40 / arna86

Smá update! :)

Já, langt síðan ég hef skrifað hérna.

Svona er þetta bara.. nóg annað að gera, hehe.

En það er nú svo sem ekkert merkilegt að frétta.

Ég er bara enn að vinna í grunnskólanum hérna á Patró, Siggeir minn að vinna í Orkubúinu. Við erum bæði í námi, ég í kennaranámi og hann er í sjúkrabílaskólanum. :)

Stærsta fréttin er sennilega sú að við eigum  von á okkar fyrsta barni 20. júní nk. og mun það vera lítil stúlka! :) Mikil spenna hér á þessum bæ enda getum við ekki beðið eftir því að fá að sjá lilluna okkar. :)

Já, er þetta ekki bara ágætt update? :)

Kv. Arna M. og bumbumús. :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.07.2009 12:10:58 / arna86

24. júlí!

Jæja.. ætti ég kannski að blogga smá um sumarið.. eða allaveg það sem búið er af því.

  • Sjómannadagshelgin á Patró var á sínum stað í júní og eins og venjulega var ég að vinna á tveimur böllum fyrir björgunarsveitina og gekk það bara vel.
  • Um miðjan júní skruppum við suður og fórum í brúðkaup.
  • Bíldudals grænar baunir voru líka á sínum stað í endaðan júní og gistum við þar alla helgina á hótel mömmu. Siggeir var á lögguvaktinni og ég var á sjúkravakt, s.s. alltaf að hala inn peningum fyrir bjsv. Blakk.
  • Fljótlega í júlí fórum við í Þórsmörk og gistum þar tvær nætur. Ægir vinur okkar fór með okkur og þarna voru einnig tengdapabbi og hans kona, sonur hennar, frændi Siggeirs, frænka Siggeirs og hennar fjölskylda og Magnús systursonur Siggeirs. Skriða fékk líka að fara með okkur. Veðrið lék við okkur og komum við sólbrennd og sæl heim aftur.
  • Í sumar er ég búin að vera að vinna sem flokkstjóri hjá áhaldahúsinu og það er alltaf jafn gaman.
  • Veðrið er búið að vera frábært í sumar og er í dag fyrsti dagurinn þar sem það er frekar kalt og rigning af einhverju viti. En það þarf ekki að vera neitt neikvætt við það því það jákvæða við rigninguna er að loksins fær gróðurinn almennilega vökvun. :)
Já, þetta er svona það helsta sem ég hef gert í sumar.. :)

Kv. Arna M.


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.03.2009 11:44:05 / arna86

7. mars!

Jæja, blogg.. hmm :)

Veit sko ekkert hvað ég á að skrifa..

Á sunnudaginn síðasta, 1. mars, varð hún Urður Vala 6 ára. Ótrúlegt að hún skuli vera orðin svona stór. Tíminn er greinilega fljótur að líða. Einnig var yngsta stelpan hjá Sissu nefnd og mun hún heita Sunna Bríet, það er ákaflega fallegt nafn og fer henni vel. :)

Síðustu helgi var ég að vinna við Kúttmagakvöld Lions. Björgunarsveitin sá um að elda matinn og fengum við veglegan styrk í staðinn. :)

Unglingadeildin gengur rosalega vel. Rauði Krossinn hér á svæðinu er búinn að styrkja okkur um 100.000 kr. og Kvenfélagið var að styrkja okkur um 200.000 kr. Þetta er alveg frábært og er ég þakklát fyrir þessa styrki. Þetta kemur okkur að góðum notum.

Nóg að gera í vinnunni og náminu. Styttist í að ég fari suður í staðlotu. Fer suður 15. mars og ég get ekki beðið eftir að hitta familíuna í Hfj. og knúsa þau smá. :) Enda alltof langt síðan ég sá þau síðast.

Ég hef mikið verið að hugsa um það hvað það er skrýtið að fylgjast ekki með Sunnu Bríeti breytast, stækka og dafna. Ég fylgdist með þessu öllu hjá systrum hennar en þá var ég svo lukkuleg að vera búsett á höfuðborgarsvæðinu. Síðast þegar ég sá Sunnu Bríeti var hún bara 1 mánaða en núna er hún orðin 3 mánaða og hefur breyst mikið. :)

Við hjúin ætlum að fara á Bíldó í dag.. Siggeir langaði svo í kjúlla hjá mömmu og auðvitað varð hún að ósk hans.

Við erum búin að vera dugleg í morgun að laga til og svona. :)

En segjum þetta gott í bili bara.

Þangað til næst..

Kv. Arna M.




» 1 hafa sagt sína skoðun

16.02.2009 18:11:45 / arna86

16. febrúar 2009!


ÉG Á AFMÆLI Í DAG!

TIL HAMINGJU ÉG!


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.02.2009 19:47:20 / arna86

12. febrúar - 4 dagar!

Jæja, þá eru bara 4 dagar í afmælið mitt! Mín að verða 23 ára. :)

Á síðustu helgi fórum við Siggeir á þorrablót á Bíldudal og skemmtum okkur mjög vel. Fórum með ma & pa og Bríeti, Smára og Magna (miðjustrákurinn þeirra). Maturinn var góður og skemmtiatriðin frábær. Síðan var ball og var eitthvað aðeins dansað og síðan bara farið heim. Gistum á Bíldó og var það bara fínt. Siggeir var síðan veikur á mánudeginum, fékk þessa bévítans magapest og var alveg frá í 2 daga. Ég varð síðan veik í gær og fór heim úr vinnunni. Var bara heima í dag því ég var með hita í gærkvöldi. :(

Skólinn gengur bara vel og síðan er ég að hjálpa Siggeir með enskuna, hann er að taka hana í fjarnámi og honum gengur bara mjög vel líka.

Hef voðalega lítið að segja.. held að þetta sé í fyrsta skipti í langan tíma sem að ég hef ekki bloggað nánast á hverjum degi áður en afmælið mitt er. :)

Það gengur rosalega vel með unglingadeildina. Við reynum að vera dugleg að blogga, www.vestri.bloggar.is

Það er búið að vera alveg frábært veður síðustu daga, svolítið kalt en það er ekkert svo hræðilegt. Sólin hlýjar okkur í kuldanum. En ég er svona nánast 100% viss um að það verði vont veður á afmælisdaginn minn. Það er það yfirleitt en það verður bara gott ef að veðrið verður svona eins og það er búið að vera undanfarið.

Ég sakna Sissu, Örvars og stelpnanna þeirra svo rosalega mikið! :s Ég sakna þess líka að geta ekki fylgst með lillunni stækka og dafna eins og ég gat fylgst með Urði Völu og Agnesi Gígju.

Ég fer suður 20. feb.. er að fara með krökkunum á Samfés. :) Það verður bara stuð, held ég.

Þetta er nóg í bili.. :)

Kv. Arna M.


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.01.2009 18:28:48 / arna86

30. janúar!

Þá er þessi mánuður að verða búin og það þýðir bara eitt..... ég á afmæli eftir 17 daga!!!! :)

Pabbi er að verða 70 ára á næsta föstudag og held ég að hann ætli að vera að heiman. :)

Námið gengur bara vel og ég er bara ánægð með áfangana sem ég er í núna, annar heitir Upplýsingatækni og miðlun og hinn heitir Listir og barnamenning.

Það er ekkert planað fyrir þessa helgi.. það verður bara að koma í ljós hvað ég geri af mér. :)

Veit bara ekki hvað ég á að segja ykkur..  :)

Mamma og pabbi eru orðin tæknivæddari. :) Pabbi fjárfesti sér í tölvu og Öddi frændi er búinn að vera hjá þeim í dag að kenna þeim á hana. :)

Skorri er sko algjört skrímsli. Hann tók sig til áðan og nagaði í sundur snúruna fyrir hleðslutækið á tölvunni en sem betur fer gat Siggeir minn lagað það. :)

En já, þetta er bara gott í bili held ég.

Njótið helgarinnar!

Kv. Arna M.


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.01.2009 20:53:59 / arna86

18. janúar!

Jæja, þá er komið að smá bloggi..

Það hefur nú ekki mikið gerst síðan ég bloggaði síðast.

Ég var alla síðustu viku og 2 daga í vikunni þar á undan ein með 1. bekkinn því að hún Bára var í staðlotu í Rvk. Það gekk bara ótrúlega vel enda duglegir krakkar á ferðinni. :)

Síðan var ég með félagsmiðstöðina á fimmtudags- og föstudagskvöld og það var bara fínt. Verð með hana líka núna á þriðjudags- og fimmtudagskvöld.

Við fórum í jeppaferð í gærkvöldi og það var bara gaman. Þangað til bíllinn hans Siggeirs bilaði, það brotnaði framöxull, því miður. En þrátt fyrir það var gaman. Með í för var Öddi frændi, Ægir og Ingþór. Set hérna nokkrar myndir úr ferðinni...

Ægir (fremri bíllinn) og Ingþór að fara af stað..

Ingþór að reyna að komast áfram og Ægir að hleypa úr dekkjunum..

Ingþór festist þannig að Siggeir þurfti að losa hann.


Ægir að skemmta sér í öllum snjónum og Öddi frændi eitthvað að tala við hann...

Ægir festist líka þannig að Siggeir dró hann einnig..

Ægir á fullri ferð upp brekkuna..

Siggeir að reyna að komast upp.. stuttu seinna brotnaði öxull hjá honum. :(

Allur bílaflotinn saman..

Er bara búin að liggja í leti í dag. Fór samt út með hundana og gerði heiðarlega tilraun við heimsækja Bríeti sys en það var enginn heima. Þannig að Magni afmælisbarn fékk engan afmæliskoss frá frænku. Magni er víst 16 ára í dag, bara orðinn fullorðinn! Til hamingju með daginn, elsku Magni minn!!

En segjum þetta bara gott í bili..

Kv. Arna M.


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.01.2009 14:33:00 / arna86

9. janúar!

Gleðilegt nýtt ár!

Þá er komið að því að ég bloggi smá.

Við Siggeir vorum hjá Birnu Mjöll (móðursystir hans) og co á gamlárskvöld og þar var mikið borðað. :) Síðan var horft á ömurlegt áramótaskaup!! Hló bara að facebook brandaranum! Síðan var bara beðið eftir að klukkan yrði 12 til að hægt væri að sprengja! Ég bara horfði á og var þetta bara skemmtilegt. Síðan fór Siggeir á lögguvakt og ég fór heim að athuga með Skriðu og Skorra og var í lagi með þau. Skriða var samt frekar stressuð og hrædd. Fór síðan til Bríetar og var þar í smástund. Fór svo bara heim, horfði á tv og sofnaði í sófanum. Fórum á Bíldó á nýársdag í mat til ma&pa og það var bara fínt.

Fórum svo á aðalstræti 90 og vorum að spila föstudags- og laugardagskvöld. Það var spilað Risk og póker. Vorum að spila með Ödda, Ægi, Ingþóri, Vilhelm og Kerani. :) Voða gaman.

Fór síðan suður á sunnudaginn og fóru ma&pa með mér. Þau fóru með til þess að sjá nýjasta erfingjann! Þeim leist bara voðalega vel á hana og ég var hissa á því hvað hún var búin að breytast mikið frá því að ég sá hana fyrst. Hún brosti þvílíkt mikið fyrir ömmu sína. Hún var greinilega ánægð að hitta hana. Síðan passaði pabbi hana tvisvar sinnum í smátíma á meðan Sissa skrapp út og er pabbi því fyrstur að passa þessa litlu dömu. Planað er að skíra hana í febrúar og þá fer maður auðvitað suður! Enda er ég spennt að fá að heyra hvað hún mun heita! :)

Það var æðislegt að hitta familíuna í Hafnarfirði og stelpurnar voru sko frekar ánægðar með að hafa okkur hjá sér í 3 daga!

Ég nældi mér í streptókokka á sunnudaginn. Fann eitthvað til í hálsinum þegar við vorum að keyra inn í Mosó og þá sagði ég við mömmu að það væri greinilegt að ég væri með ofnæmi fyrir höfuðborginni! :)

En já, er bara búin að vera heima slöpp og í vinnunni. Er að kenna 1. bekk þessa og næstu viku! :)

Þetta er bara nóg í bili held ég..

Kv. Arna M.


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.12.2008 00:46:11 / arna86

27. desember!

Kvöldið.

Hvað segið þið þá? Allir búnir að borða yfir sig af góðum jólamat? Það er allavega þannig hér á þessum bæ. :)

Já, ég var hjá Bríeti sys & co á aðfangadagskvöld. Þar voru mamma og pabbi líka. Það var bara jafn gott og alltaf. :) Ég fékk nú ýmislegt í jólagjöf..

  • Ma & pa gáfu okkur tösku sem í voru hin ýmsu eldhúsáhöld.
  • Ma gaf mér kerti
  • Bríet & co gáfu okkur matreiðslubók sem heitir Silfurskeiðin
  • Sirrý & co gáfu okkur 2 kertastjaka og 2 jólaskraut
  • Tengdamamma gaf okkur jóladúk undir jólatré
  • Amma hans Siggeirs gaf okkur nýjustu Útkalls bókina á hljóðdisk
  • "Amma" og "Afi" á Ólafsfirði gáfu mér handklæði
  • Afi á Ísó og konan hans gáfu mér konfektkassa
  • Tengdapabbi og frú gáfu mér flíspeysu og krem frá Elisabeth Arden
  • Hjördís (systir Siggeirs) & co gáfu okkur saltsteinslampa
  • Ægir (vinur okkar) gaf okkur 2 kertastjaka
  • Siggeir gaf mér silfursafnið með Páli Óskari, Joe Boxer náttföt og bókina "Gerðu besta vininn betri", það er hundabók.
Fórum síðan í gær á Bíldó í hangikjötsveislu til ma og var það bara fínt. Enn og aftur var etið á sig gat.

Í dag fórum við út með hundana. Fórum inn í botn og vorum að leika okkur eitthvað þar. Tengdamamma kom með okkur. Síðan hittum við Bríeti & Smára og eltum þau.. smá jeppaferð. Hleyptum síðan hundunum út og náðum loksins hópmynd af þeim..


Skorri, Trýna, Skriða, Skutla og Skytta.. öll voða sæt. :)

Síðan var bara slappað af hér heima.. fór síðan að borða hjá tengdó og stoppaði þar aðeins. Fór síðan út með Siggeir og vorum við að hjálpa aðeins við að færa til flugelda. Síðan var bara komið hingað heim og mættu Öddi og Ægir og var spjallað og skoðaðar myndir hér í tölvunni. Loks komu Vilhelm og Ingþór (frændur Siggeirs) og er núna verið að spila Risk og ég fyrst til að detta út. Er svo sem fegin.. finnst þetta spil ekkert spes.. :)

En jæja.. þetta er nóg í bili..

Kv. Arna M.


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.12.2008 14:26:22 / arna86

23. desember - Jólakveðja!


*****************************************************************

Gleðileg jól og farsælt komandi ár.

Þökkum árið sem er að líða og vonumst til að sjá sem flest ykkar á nýju ári.

Kv. Arna Margrét og Siggeir


*****************************************************************



» 0 hafa sagt sína skoðun

16.12.2008 13:46:18 / arna86

16. desember!

Jæja, þá er best að skrifa eitthvað hér inn.

Ef ég hefði veðjað um það hvað dag litla hennar Sissu myndi fæðast þá hefði ég unnið!! Já, þessi litla sæta skvísa kom í heiminn 10. des. kl 05.56 og var hún 14,5 mörk og 51 cm. Hún ákvað að láta sjá sig daginn sem ég fór suður með eldri systurnar og ég vissi að hún myndi ekki bregðast mér og koma þennan dag, svo ég gæti séð hana fyrst. :):)

En hún er algjört æði og stóru systurnar eru sko lukkulegar og þær fengu stjörnur í augun þegar þá sáu hana í fyrsta sinn.

Það var fínt fyrir sunnan og gistum við hjá Hjördísi (systur Siggeirs) og var það bara fínt. Nánast allar verslanir Rvk voru þræddar á þessum dögum enda nóg að gera við að kaupa jólagjafir og ýmislegt sem vantaði fyrir heimilið.

Við keyrðum báðar leiðir og gekk það bara vel. Skriða og Skorri voru í pössun hjá ömmu bestu á Bíldudal! Já, mamma er sko amma þeirra og er langbest að nenna að passa þessi villidýr. Jaa.. Skorri er nú villidýr ekki Skriða. Á meðan hann var í pössun opnaði hann 1 jólapakka, kúkaði og pissaði á gólfið, stal 4 mömmukökum og nokkrum súkkulaðibitakökum sem voru bæði bakaðar og óbakaðar. :)

Næst síðasti dagurinn í leikfiminni var í dag. Það var sko tekið vel á og er ég viss um að þetta hafi verið erfiðasti tíminn. En ég ætla að vera dugleg að fara sjálf eftir að þetta hættir. Hróðný á sko hrós skilið fyrir þetta og er ég búin að læra helling á að vera hjá henni í vetur.

Hér er hvít jörð og vonandi helst það fram yfir jól. Finnst það ótrúlegt að það séu bara 8 dagar til jóla. Tíminn er ótrúlega fljótur að líða.

Vona bara að allir eigi góðan dag.

Sissa, ég sakna ykkar ótrúlega mikið!!

Kv. Arna M.


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.12.2008 22:23:49 / arna86

8. desember!





Skoðar þetta einhver???



Kv. Arna M. :)


» 9 hafa sagt sína skoðun

27.11.2008 14:04:26 / arna86

27. nóvember - Helgarfrí!! :)

Daginn daginn.

Þá er jörðin orðin hvít aftur en ég efast um að þessi snjór verði hér lengi.. það verður farið að hlýna áður en maður veit af.

Samt er ótrúlegt hvað maður er óvanur kuldanum. Ég meina, við búum á Íslandi og það er kalt allavega 7 mánuði ársins. Það er samt verst þegar það skiptist á að vera heitt og kalt. Það er kannski -2°C einn daginn og þann næsta er síðan +7°C. En það er nú samt gott að búa á Íslandi.

Hvað get ég sagt ykkur? Ég er komin í helgarfrí, vann af mér föstudaginn þar sem það eiga bara að vera foreldraviðtöl.

Ég er kattapía um helgina, ekki barnapía. :) Er að passa kisulingana þeirra Hróðnýjar og Arons, því þau ætla að skreppa til Rvk þessa helgi. Það verður bara stuð. :) Vona bara að það gangi vel að greiða Rjómanum og þvo á honum augun. :)

Urður Vala og Agnes Gígja koma á sunnudaginn vestur með ma&pa og verða þær hérna fyrir vestan í ca. 10 daga. :) Það verður bara gaman. Þær fara svo með okkur Siggeir suður þann 10. des og þá verður litla systir þeirra kannski komin í heiminn.

Sædís er búin að plata mig í jólasmákökubakstur um helgina. Það verður örugglega gaman. Sædís, þú þarft bara að segja mér hvað ég á að koma með í baksturinn.. hveiti eða eitthvað annað??

Já, styttist í prófið mitt. Það verður 12. des og ég er ekkert svo stressuð. Enda er ég ekki vön því að vera stressuð fyrir próf. Ég mun samt vera duglega að lesa fyrir prófið til að ná því. :) Er það ekki alltaf markmiðið, að ná prófunum?

Segjum þetta gott í bili.. þangað til næst.

Kv. Arna M.


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.11.2008 14:11:47 / arna86

20. nóvember!

Daginn.

Jæja, best að blogga eitthvað. :)

Á sunnudaginn síðasta vorum við Bríet sys með kynningarfund um unglingadeildina Vestra. Það mætti slatti af krökkum og er ég með ca 30 skráða.

Ákveðið var að við myndum hittast á mánudagskvöldum, þ.e.a.s unglingadeildin og ég. Ég er umsjónarmaður og fæ svo hjálp frá öðrum í Bjsv. Blakk. Vorum bara með létt kvöld, leyfðum krökkunum að skoða bjsv. bílinn og fikta aðeins í tökkunum í honum og kenndum þeim lauslega á snjóflóðaýla. Þau allavega skyldu tilganginn með ýlunum. Síðan röltum við niður á höfn og skoðuðum öryggisatriðin þar.

Erum síðan að fara í kvöld og kynna unglingadeildina fyrir krökkunum á Tálknafirði. :)

Það gengur bara vel í ræktinni, mæti 2x í viku og svo er bara að taka mataræðið í gegn. Hróðný ætlar að vera svo elskuleg að hjálpa mér með það. :)

Voða lítið að frétta. Öddi minn verður 21 á morgun! Hann stækkar og stækkar. :):)

Við Siggeir erum síðan að fara út að borða með Grunnskóla Vesturbyggðar og Grunnskóla Tálknafjarðar á morgun, voða gaman. :)


Á laugardaginn er síðan námskeið hjá björgunarskólanum, þannig að helgin er nú barasta þétt setin.

Styttist í að krílið hennar Sissu láti sjá sig. Ég býð spennt, vona það innilega að ég fái að sjá hana í desember. :)

En er þetta ekki gott í bili bara.

Kv. Arna M.



» 0 hafa sagt sína skoðun

07.11.2008 13:31:27 / arna86

7. nóvember!

Daginn.

Jæja, aldeilis kominn tími á blogg!!

Hef nú ekki gert mikið undanfarna daga en get sennilega fundið eitthvað til að skrifa hér.

Á síðustu helgi var ég á námskeiði í fyrstu hjálp 2 og það gekk vel. Vorum samtals 8 mætt og náðu allir námskeiðinu og þá var markmiðinu náð. :) Síðan eru 2 námskeið 22. nóvember og þau eru fjarskipti 1 og björgunarmaður í aðgerðum. Það er sko nóg að gera hjá manni.

Síðan er björgunarsveitin að endurvekja unglingadeildina Vestra og er ég umsjónarmaður yfir henni. Síðan mun restin af fólkinu í sveitinni styðja við bakið á mér og hjálpa mér þegar þarf. Unglingadeildin er fyrir krakka á aldrinum 13-18 og erum við Bríet búnar að tala við 8.-10. bekk og voru flest allir rosa áhugasamir, sem er bara gott. Verðum með rosa flottan kynningarfund 15. nóvember nk. :)

Síðan er ég að byrja í átaki núna næsta þriðjudag. Hún Hróðný er að byrja með konuleikfimi og er það 2x í viku kl. 6.30-7.30 og erum við 8 sem verðum í þessu hjá henni. Ég er rosa spennt og þar sem ég er svo mikill morgunhani þá munar mig ekkert um það að vakna hálftíma fyrr. :) Ætla að vera ótrúlega dugleg!!!

Skorri er 3 mánaða í dag. Tíminn fljótur að líða. Hann kann að sitja og gelta eftir skipun, kalla ég það nokkuð gott að 3 mánaða hvolpur gelti eftir skipun. :)

Hérna er hann að éta eitthvað drasl. :)


Á flugi


Ein af Skriðu sætu. :)

Já, hef nú ekki alveg ákveðið hvað ég ætla að gera um helgina. Siggeir verður örugglega að vinna í bílnum sínum því það á að reyna að koma honum á götuna um helgina. Hann er búinn að vera í breytingum hjá honum Davíð Valgeirs hér á Patró. Siggeir og Ægir hjálpuðust að við að sprauta nýju kantana sem fara á hann og Davíð að vinna í ýmsu öðru. Bíllinn verður því kominn á 35" dekk á sunnudaginn, vonandi. :)

Það eru nokkrir sem eiga afmæli í þessum mánuði..

2. Smári (mágur minn)

4. Ívar Örn

11. Anna Kristín

12. Harpa Sif

15. Við Siggeir eigum 3 ára afmæli :)

21. Öddi frændi

En ætli þetta sé ekki gott í bili.

Kv. Arna M.


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 23
Heimsóknir
Í dag:  11  Alls: 80914
Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.